Hraðskákkeppni taflfélaga: TR sigraði Vestmanneyinga



Taflfélag Reykjavíkur sigraði Taflfélag Vestmannaeyja í síðustu viðureign fyrstu umferðar Hraðskákkeppni taflfélaga sem fram fór í gærkveldi í húsnæði TR.  Reykvíkingar fengu 37,5 gegn 34,5 vinningi Eyjamanna.  Staðan í hálfleik var 20-16.  Vestmanneyingar unnu fyrstu umferðina 3,5 – 2,5 en TRingar aðra umferð með 4-2 og þetta setti tóninn fyrir keppnina; liðin skiptust á að vinna umferðir en TRingar yfirleitt með meiri mun.  Langdrýgstir TRinga voru Arnar Gunnarsson og Guðmundur Kjartansson með 10 og 10½ vinning en í hópi Eyjamanna fór Björn Ívar Karlsson fremstur í flokki með 9 vinninga.

 

Árangur Reykvíkinga:

Arnar Gunnarsson 10 v. af 12

Guðmundur Kjartansson 10,5 v.af 12

Snorri Bergsson 5 v. af 12

Bergsteinn Einarsson 5 v. af 12

Júlíus Friðjónsson 1,5  v. af 6

Torfi Leósson 3 v. af 10

Ríkharður Sveinsson 1,5 v. af 5

Eiríkur K. Björnsson 0 v. af 2

 

Bestir Vestmanneyinga voru:

Björn Ívar Karlsson 9 v. af 12

Ingvar Þór Jóhannesson 7,5 v. af 12

Þorsteinn Þorsteinsson 7 v. af 12

Dr. Kristján Guðmundsson 7 v. af 12