Haustmót TR hefst á sunnudaginn



5_haustmotid

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2015 hefst sunnudaginn 13. september kl.14. Mótið, sem er hið 82. í röðinni, er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót T.R. Mótið er flokkaskipt og öllum opið.

Haustmótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12. Tefldar verða tvær umferðir á viku. Alls eru níu umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi.

Skráningu í alla lokaða flokka lýkur laugardaginn 12. september kl. 18.

Lokaumferð fer fram föstudaginn 16. október en mótinu lýkur með verðlaunaafhendingu sunnudaginn 18. október þegar Hraðskákmót TR fer fram.

Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Þorvarður Fannar Ólafsson.

Skráningarform

Skráðir keppendur

Dagskrá:

  • 1. umferð: Sunnudag 13. september kl. 14.00
  • 2. umferð: Miðvikudag 16. september kl. 19.30
  • 3. umferð: Sunnudag 20. september kl. 14.00
  • —Hlé vegna Íslandsmóts skákfélaga—
  • 4. umferð: Miðvikudag 30. september kl.19.30
  • 5. umferð: Sunnudag 4. október kl. 14.00
  • 6. umferð: Miðvikudag 7. október kl. 19.30
  • 7. umferð: Sunnudag 11. október kl. 14.00
  • 8. umferð: Miðvikudag 14. október kl. 19.30
  • 9. umferð: Föstudag 16. október. kl. 19.30

Í opna flokknum eru leyfðar tvær yfirsetur (bye) í umferðum 2-6 en fyrir yfirsetu fæst 1/2 vinningur. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.

Verðlaun í A-flokki:
1. sæti kr. 100.000
2. sæti kr. 50.000
3. sæti kr. 25.000
4. og 5. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2016

Verðlaun í B-flokki:
1. sæti kr. 20.000
2.-3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2016

Verðlaun í C-flokki:
1. sæti kr. 15.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2016

Verðlaun í opnum flokki:
1. sæti kr. 10.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2016

Ef lokuðum flokkum fjölgar þá verða verðlaun í þeim þau sömu og í C-flokki. Að auki ávinnur sigurvegari hvers flokks sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu. Verði keppendur jafnir í efstu sætum verður peningaverðlaunum skipt en stigaútreikningur látinn ráða lokaröð keppenda. Taflfélag Reykjavíkur áskilur sér jafnframt rétt til þess að halda eftir 25% af verðlaunafé þeirra sem ekki mæta á verðlaunaafhendinguna.

Tímamörk:
1 klst. og 30 mín. + 30 sek. á leik. Að loknum 40 leikjum bætast við 15 mínútur.

Þátttökugjöld:
3.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 16 ára og eldri (5.000 kr. fyrir aðra).
1.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 15 ára og yngri (2.500 kr. fyrir aðra).

Uppgjör Haustmótsins 2014