Norðanmaðurinn knái, Haraldur Haraldsson, sem snúinn er suður til Reykjavíkur er einn efstur fyrir síðustu umferð Öðlingamóts TR með fimm vinninga af sex mögulegum. Hann vann nafna sinn Baldursson í uppgjöri efstu manna í sjöttu umerð sem tefld var miðvikudaginn 20. mars síðastliðinn. Þorvarður Ólafsson, sem einnig var með fjóra vinninga, gerði jafntefli við Lenku Ptacnikovu og á þriðja borði vann svo Jóhann Ingvason Snorra Þór Sigurðsson. Þeir Þorvarður og Jóhann eru því í öðru og þriðja sæti fyrir lokaátökin. Þótt Haraldur sé efstur fyrir lokaumferðina, má hann helst ekki misstíga sig í lokaumferðinni.
Næsta miðvikudagskvöld, þann 27. mars, fær Haraldur svart gegn Jóhanni Ingvasyni. Þorvarður fær svo að spreyta sig á 2.borði gegn hinum margreynda Jóhanni Ragnarssyni. Á fjórða borða mætast Lenka og Haraldur Baldursson sem hafa fjóra vinninga og geta því blandað sér í toppbaráttuna. Erfitt er að spá um hvernig fer því allt eru þetta reynsluboltar á skáksviðinu. Vinni Haraldur Haraldsson í lokaumferðinni er ljóst að hann mun standa uppi sem sem Öðlingameistari 2019 en Jóhann gæti þó reynst ljár í þúfu hans.
Skákáhugamenn eru hvattir til að koma í heimsókn í Faxafenið og berja skákmennina augum næstkomandi miðvikudagskvöld. Hver veit nema snilldin verði slík að skákdálkar fréttablaðanna fyllist af kræsilegum krossleppunum og furðulegum fráskákum eftir átök öðlinganna.