Guðmundur Kjartansson (2356) sigraði skoska skákmanninn Graeme Kafka (2077) í 2. umferð Skoska meistaramótsins sem fram fór í dag. Aron Ingi Óskarsson (1876) tapaði hinsvegar fyrir Englendingnum Dominic Foord (2069).
Guðmundur er með fullt hús, tvo vinninga, en Aron Ingi er ekki kominn á blað. Ekki liggur fyrir pörun þriðju umferðar sem fer fram á morgun.
Heimasíða mótsins
Skákirnar í beinni