Landsliðsflokkur Skákþings Íslands hófst í gær í Bolungarvík. Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2356), tapaði nokkuð óvænt fyrir Fide meistaranum, Róberti Lagerman (2351). Guðmundur hafði svart og tefldi sína uppáhaldsbyrjun, Caro-Kann, og var uppskiptaafbrigðið teflt. Skákin var lengi vel í jafnvægi og þegar stefndi í endatafl virtist Guðmundur jafnvel hafa aðeins betra vegna betri peðastöðu. Guðmundur tefldi þó lokin ekki nógu vel og Róbert hafði góðan sigur að lokum.
Úrslit 1. umferðar
1 | 1 | FM | Olafsson David | ½ – ½ | Ornolfsson Magnus P | 12 | |||
2 | 2 | IM | Thorfinnsson Bragi | 1 – 0 | FM | Johannesson Ingvar Thor | 11 | ||
3 | 3 | GM | Danielsen Henrik | 1 – 0 | Gislason Gudmundur | 10 | |||
4 | 4 | IM | Arngrimsson Dagur | ½ – ½ | GM | Thorhallsson Throstur | 9 | ||
5 | 5 | FM | Lagerman Robert | 1 – 0 | FM | Kjartansson Gudmundur | 8 | ||
6 | 6 | IM | Gunnarsson Jon Viktor | 1 – 0 | FM | Bjornsson Sigurbjorn | 7 |
Önnur umferð fer fram í dag og hefst kl. 16 en þá mætir Guðmundur alþjóðlega meistaranum, Jóni Viktori Gunnarssyni (2462).
- Heimasíða SÍ
- Chess-Results
- Skákirnar í beinn