Guðmundur enn efstur í Sabadell



Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2434) er í efsta sæti með 6 vinninga ásamt armenska stórmeistaranum Karen Movsziszian (2503) þegar ein umferð lifir af alþjóðlega mótinu í Sabadell.  Í áttundu umferð gerði Guðmundur jafntefli við spænska stórmeistarann Miguel Munoz Pantoja (2457) og hefur okkar maður því aðeins tapað einu sinni í mótinu en það gerðist í annari umferð.  Í lokaumferðinni sem hefst í dag kl. 15 hefur Guðmundur hvítt gegn spænska alþjóðlega meistaranum Javier Moreno Ruiz (2469).

  • Chess-Results
  • Heimasíða mótsins