Í gær var síðasta æfing byrjendaflokks TR fyrir sumarfrí og við söfnuðumst saman til að tefla, leysa þrautir og æfa mátin í eitt skipti í viðbót.
Gleðin og einbeitingin skein úr augum allra þessara áhugasömu krakka sem hafa lagt hart að sér við æfingar í vetur.
Jafnframt voru veitt verðlaun fyrir bestu mætingar vetursins. Þau fengu:
Gull: James Han Dong Gao
Silfur: Benedikt Stefánsson, Motiejus Maminas, Óðinn Eldjárn Dagbjartsson.
Bronz: Hrafnkell Sveinn Hrannarson, Sigurður Höeg Jónsson, Sævin Ævar Hafþórsson.
Þetta hefur verið glæsilegur hópur sem hefur æft í vetur. Það verða sumarnámskeið hjá Taflfélagi Reykjavíkur sem nánar verða auglýst síðar, en svo sjáumst við vonandi aftur næsta haust!