Hvers vegna Taflfélag Reykjavíkur?

Með skráningu í Taflfélag Reykjavíkur hjálpar þú okkur að halda úti öflugu starfi fyrir börn og unglinga, byrjendur og lengra komna.  Félagið, sem er elsta og stærsta skákfélag landsins, stendur fyrir tugum skákmóta- og viðburða á ári hverju auk tæplega tvöhundruð skákæfinga þar sem fram fer þjálfun og kennsla fyrir börn og unglinga. Einnig er boðið upp á skákfæingar fyrir fullorðana. Upplýsingar um mótahald og æfingar má nálgast undir liðnum æfingar og mót.

tr

Með dyggum stuðningi félagsmanna ásamt öflugum bakhjörlum er félaginu kleyft að bjóða upp á skákkennslu og þjálfun.

Sértu fullgildur félagsmaður færðu atkvæðisrétt á aðalfundum þar sem þú getur haft áhrif á innra starf félagsins.  Fréttablað TR er sent öllum félagsmönnum þar sem fjallað er um viðburðina, skákmennina og æskulýðsstarfið svo eitthvað sé nefnt. TR er fjölmennasta taflfélag Íslands með rúmlega 500 skráða félagsmenn.

tr

Í Taflfélagi Reykjavíkur ríkir öflug liðsheild sem skín skærast þegar félagið sendir fjölda liða til leiks á Íslandsmót skákfélaga ár hvert en undanfarin ár hefur TR sent flest liða til leiks. Viðamikið og metnaðarfullt grasrótarstarf gerir það að verkum að við njótum þeirra forréttinda að geta sent fjölda barnaliða á Íslandsmótið þar sem yngsta kynslóðin heldur uppi merkjum félagsins og öðlast dýrmæta reynslu.  Í gegnum tíðina höfum við í TR verið þeirrar gæfu aðnjótandi að geta leitað í hóp okkar öflugu félagsmanna til að tefla fyrir hönd félagsins.

Við fögnum öllum nýjum félagsmönnum og sérstaklega hvetjum við foreldra og forráðamenn, að fylgjast með barna- og unglingastarfinu okkar, því þar liggur hin mikilvæga grasrót.  Þar er grunnurinn lagður.  Þar er framtíðin.

Árgjaldið er frítt fyrir börn (17 ára og yngri) og mjög hóflegt fyrir þá fullorðnu, aðeins 6.000 krónur. Um er að ræða valgreiðslu í heimabanka.

Komdu og taktu þátt í skemmtilegu starfi með okkur. Hjálpaðu okkur að gera gott skákfélag enn betra.  Við þökkum þér fyrir stuðninginn og hlökkum til að vinna með þér!