Annar sigurinn í röð kom í hús hjá Gauta Páli Jónssyni þegar hann knésetti hinn norska Eskil Ekeland Gronn (2015) í sjöttu umferð EM ungmenna. Gauti hefur nú 2,5 vinning og er í 60.-68. sæti en tveir keppendur leiða með 5,5 vinning. Frídagur er á morgun en sjöunda umferð hefst á sunnudag kl. 13 og hefur Gauti þá svart gegn Ísraealanum Omer Kali (2073).
Símon Þórhallsson og Oliver Aron Jóhannesson gerðu báðir jafntefli í dag og hefur Símon 2,5 vinning en Oliver 3 vinninga. Dagur Ragnarsson tapaði.
- Úrslit, staða og pörun
- Heimasíða mótsins