Fyrsta Bikarsyrpa T.R. á tímabilinu 2024-25



BikarsyrpanBanner_generic

Helgina (11-13 október) fer fram mót í Bikarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er fyrsta mótið af fimm sem haldið er á tímabilinu 2024-25. Tefldar verða 7 skákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur Faxfeni 12.

Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla á “alvöru mótum” einkum staðið til boða að taka þátt í opnum mótum. Þar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk þess sem mörgum börnum óar við tilhugsuninni um að tefla við fullorðna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svarið við því. Þessi mótaröð TR er ekki síður sniðin að þörfum þeirra barna sem dreymir um að næla sér í sín fyrstu skákstig.

Einungis börn á grunnskólaaldri (fædd árið 2007 eða síðar) sem ekki hafa náð 1800 alþjóðlegum skákstigum geta tekið þátt í mótum Bikarsyrpunnar. Þannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta þess betur að tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíðkast á hefðbundnum kappskákmótum fullorðinna. Mótin uppfylla öll skilyrði Alþjóða skáksambandsins FIDE og eru reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.

Fyrsta mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 11. október og stendur til sunnudagsins 13. október. Tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.

Dagskrá:

1. umferð: 11. október kl. 17.30 (fös)

2. umferð: 12. október kl. 9.00 (lau)

3. umferð: 12. október kl. 13.00 (lau)

4. umferð: 12. október kl. 16.00 (lau)

5. umferð: 13. október kl. 10.00 (sun)

6. umferð: 13. október kl. 13.00 (sun)

7. umferð: 13. október kl. 16.00 (sun)