Þegar þrár umferðir eru búnar af Íslandsmóti skákfélaga leiðir hin fyrna sterka sveit Bolungarvíkur ásamt Hellismönnum í 1. deild með 18 vinninga en Taflfélag Reykjavíkur er í 4. sæti með 11 vinninga. Í 2. umferð beið TR ósigur gegn Bolungarvík 6-2 en viðureign 3. umferðar lauk með jafntefli 4-4 gegn Haukum. Í dag mætir a-sveitin sveit Fjölnis og b-sveitin taflfélaginu Helli en b-sveitin beið lægri hlut fyrir Fjölnismönnum 7-1 og gerði síðan 4-4 jafntefli við b-sveit Hellismanna.
Í 3. deild sigraði c-sveit TR d-sveit Hellis 4-2 en tapaði síðan naumlega 3,5-2,5 gegn sterkri b-sveit Bolvíkinga sem hlýtur að teljast viðunandi árangur. d-sveit TR sigraði d-sveit Hellis 4-2 en tapaði 3,5-2,5 gegn Taflfélagi Akraness. c-sveitin er í 3. sæti og d-sveitin í 4-5. sæti.
Í 4. deild teflir e-sveit TR, barna- og unglingasveit og að loknum 3 umferðum er sveitin í 12-14. sæti.
4. umferð fer fram í dag kl. 11 en teflt er í Rimaskóla.
Nánari upplýsingar um úrslit og stöðu má nálgast á skak.is
Chess-Results