Kristján Guðmundsson (2264), Jóhann H. Ragnarsson (2085), Magnús Gunnarsson (2128) og Björn Þorsteinsson (2198) eru efstir og jafnir með 2,5 vinning að lokinni þriðju umferð Skákmóts öðlinga sem fram fór í húsnæði Skáksambands Íslands í gærkvöldi, miðvikudagskvöld.
Rétt er að vekja athygli á myndaalbúmi Gunnars Björnssonar frá mótinu.
Á efstu borðunum gerðu Garðbæingarnir Jóhann H. Ragnarsson og Kristján Guðmundsson jafntefli, sömuleiðis Björn Þorsteinsson og Jóhann Örn Sigurjónsson. Á þriðja borði sigraði Magnús Gunnarsson, núverandi Öðlingameistari, Eirík Kolbein Björnsson.
Einni skák var frestað, en Vigfús Vigfússon, einn allra ötulasti þjónn skákhreyfingarinnar á Íslandi, var þá að stjórna unglingaskákmóti annars staðar í Feninu. Pörun 4. umferðar mun liggja fyrir þegar öllum skákum verður lokið.
Jóhann H. Ragnarsson heldur áfram að rífa sig upp og hefur grætt 15 stig á mótinu, það sem af er. Af öðrum keppendum má nefna að Páll Þórhallsson lögfræðingur hefur tvo vinninga, en hann “tók Hrafn á þetta” á Íslandsmóti skákfélaga í mars og hefur greinilega fengið bakteríuna að nýju, en það eru ábyggilega liðin um 25 ár síðan hann lagði af skákiðkun.
Um önnur úrslit og frammistöðu keppenda vísast til taflna hér að neðan.
Úrslit 3. umferðar:
Name | Rtg | Result | Name | Rtg |
Ragnarsson Johann | 2020 | ½ – ½ | Gudmundsson Kristjan | 2240 |
Sigurjonsson Johann O | 2050 | ½ – ½ | Thorsteinsson Bjorn | 2180 |
Bjornsson Eirikur K | 1960 | 0 – 1 | Gunnarsson Magnus | 2045 |
Loftsson Hrafn | 2225 | 1 – 0 | Jonsson Sigurdur H | 1830 |
Thorhallsson Pall | 2075 | 1 – 0 | Benediktsson Frimann | 1790 |
Nordfjoerd Sverrir | 1935 | 1 – 0 | Karlsson Fridtjofur Max | 1365 |
Gardarsson Hordur | 1855 | Vigfusson Vigfus | 1885 | |
Magnusson Bjarni | 1735 | ½ – ½ | Eliasson Kristjan Orn | 1865 |
Saemundsson Bjarni | 1820 | 1 – 0 | Gudmundsson Einar S | 1750 |
Fridthjofsdottir Sigurl Regin | 1670 | 1 – 0 | Jensson Johannes | 1490 |
Schmidhauser Ulrich | 1395 | 1 | bye |
Staðan:
Rk. | Name | RtgI | RtgN | Pts. | Rp | rtg+/- |
1 | Gudmundsson Kristjan | 2264 | 2240 | 2,5 | 2092 | -0,6 |
2 | Ragnarsson Johann | 2085 | 2020 | 2,5 | 2362 | 15,0 |
3 | Gunnarsson Magnus | 2128 | 2045 | 2,5 | 2279 | 2,3 |
4 | Thorsteinsson Bjorn | 2198 | 2180 | 2,5 | 2295 | 5,3 |
5 | Sigurjonsson Johann O | 2184 | 2050 | 2,0 | 2160 | -0,6 |
Saemundsson Bjarni | 1919 | 1820 | 2,0 | 2030 | 6,9 | |
7 | Thorhallsson Pall | 0 | 2075 | 2,0 | 0 | |
Nordfjoerd Sverrir | 2008 | 1935 | 2,0 | 1831 | -2,8 | |
9 | Loftsson Hrafn | 2248 | 2225 | 2,0 | 1948 | -9,9 |
10 | Bjornsson Eirikur K | 2024 | 1960 | 1,5 | 2047 | 1,5 |
11 | Magnusson Bjarni | 1913 | 1735 | 1,5 | 0 | -2,3 |
12 | Eliasson Kristjan Orn | 1917 | 1865 | 1,5 | 2027 | 5,6 |
13 | Benediktsson Frimann | 1950 | 1790 | 1,0 | 1727 | 0,0 |
Karlsson Fridtjofur Max | 0 | 1365 | 1,0 | 0 | ||
15 | Vigfusson Vigfus | 2052 | 1885 | 1,0 | 0 | 0,0 |
Gardarsson Hordur | 1969 | 1855 | 1,0 | 0 | 0,0 | |
17 | Jonsson Sigurdur H | 1883 | 1830 | 1,0 | 1962 | 2,4 |
18 | Fridthjofsdottir Sigurl Regin | 1829 | 1670 | 1,0 | 1674 | -10,1 |
Schmidhauser Ulrich | 0 | 1395 | 1,0 | 0 | ||
20 | Gudmundsson Einar S | 1670 | 1750 | 0,5 | 0 | 5,0 |
21 | Jensson Johannes | 0 | 1490 | 0,0 | 1258 |