Fimmtudagsmót T.R. hefjast í kvöld



Hin vinsælu fimmtudagsmót T.R. hefjast á ný í kvöld kl. 19.30.  Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.  Mótin fara fram í félagsheimili T.R., skákhöllinni að Faxafeni 12 og opnar húsið kl. 19.10.  Glæsilegur verðlaunapeningur er í boði fyrir sigurvegara hvers móts ásamt því sem aukaverðlaun verða í boði af og til í vetur.

Mótin eru öllum opin og er aðgangseyrir kr. 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt er fyrir 15 ára og yngri.  Boðið er upp á kaffi ásamt léttum veitingum án endurgjalds.

Síðastliðinn vetur mættu alls um 100 skákmenn á mótin og myndaðist oft fjörug stemning í Faxafeninu.  Áhugasamir eru hvattir til að mæta og taka þátt í klukkubarningnum.

ATH!  Þetta fyrsta fimmtudagsmót vetrarins er kjörin upphitun fyrir komandi Haustmót og Íslandsmót Skákfélaga.