Að venju fer fram fimmtudagsmót T.R. í kvöld kl. 19.30. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.
Mótin fara fram í félagsheimili T.R., skákhöllinni að Faxafeni 12, og opnar húsið kl. 19.10. Glæsilegur verðlaunapeningur er í boði fyrir sigurvegara hvers móts ásamt því sem aukaverðlaun verða í boði af og til í vetur.
Mótin eru öllum opin og er aðgangseyrir kr. 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt er fyrir 15 ára og yngri. Boðið er upp á kaffi ásamt léttum veitingum án endurgjalds.
Síðastliðinn vetur mættu alls um 100 skákmenn á mótin og myndaðist oft fjörug stemning í Faxafeninu. Áhugasamir eru hvattir til að mæta og taka þátt í klukkubarningnum.
ATH! Mótið í kvöld er kjörin upphitun fyrir Íslandsmót Skákfélaga.