Vegna Reykjavíkurskákmótsins voru þátttakendur á fimmtudagsmótinu 10. mars færri en venjulega eða aðeins 8. En Elsa María Kristínardóttir, sem teflir í Reykjavíkurskákmótinu, kom við í Faxafeninu á heimleið eftir skákina í Ráðhúsinu, tók þátt í fimmtudagsmótinu og gerði sér lítið fyrir og fékk 7 vinn. af 7 mögul. Hún var búin að tryggja sér sigurinn fyrir síðustu umferðina.
Lokastaðan:
1. Elsa María Kristínardóttir 7 v.
2.-3. Gauti Páll Jónsson 5 v.
2.-3. Helgi Heiðar Stefánsson 5 v.
4.-5. Guðmundur Gunnlaugsson 3 v.
4.-5. Andrés Sigurðsson 3 v.
6. Atli Andrésson 2,5 v.
7. Björgvin Kristbergsson 2 v.
8. Veronika Steinunn magnúsdóttir 0,5 v.