Emilía Embla og Haukur Víðis Reykjavíkurmeistarar 2026



Liam Nam og Jóel Helmer við taflmennsku

Liam Nam og Jóel Helmer við taflmennsku

Í Taflfélagi Reykjavíkur söfnuðumst saman í dag krakkar á öllum aldri til að heyja baráttu á reitunum 64, þegar Stúlkna- og Drengjameistaramót Reykjavíkur fór fram.

Teflt var í 4 flokkum, opnum flokki og þremur yngri flokkum, eins og undanfarin ár.

Um morguninn fór fram keppni í Yngri flokki 2 og Yngri flokki 3.

Í Yngri flokki 3, kepptu yngstu börnin, fædd 2019 eða síðar. Keppnin var afar hörð, sem sést á því að fjórir krakkar enduðu jöfn í 1. sæti með 4 vinninga úr 5 skákum. Var þá gripið til oddastigaútreiknings og var þar efstur Jakob Árnason, í 2. sæti varð Lúkas Fells Lövenholdt og í 3. sæti varð Baldvin Hrafn Aðils Sigurðsson. Þessir þrír fengu jafnframt árgangsverðlaunin fyrir bestan árangur f.2019, ásamt Kristjáni Tómasi Þorsteinssyni, sem hlaut 3 vinninga. Í 4. sæti, einnig með 4 vinninga, varð Soren Alexander Riley, en hann hlaut jafnframt árgangsverðlaunin fyrir bestan árangur f.2020, ásamt Sverri Inga Haraldssyni, Emilíu Karin Arnarsdóttur og Kötlu Stefánsdóttur.

Verðlaunahafa í Yngri flokki 3

Verðlaunahafa í Yngri flokki 3

Úrslit í Yngri flokki 3:

Yngri flokkur 2 var fyrir börn f.2018 og þar urðu 3 jafnir og efstir með 4 vinninga. Efstur á oddastigum varð Jón Fenrir Ragnarsson, í 2. sæti varð Pétur Eysteinn Norðdahl Arnarsson og þriðji varð Tauras Nareika. Þessir 3 hlutu jafnframt allir árgangsverðlaunin ásamt Vilborgu Önnu Ragnars.

Verðlaunahafar í yngri flokki: Vilborg, Tauras, Jón Fenrir, Pétur Eysteinn

Verðlaunahafar í yngri flokki: Vilborg, Tauras, Jón Fenrir, Pétur Eysteinn

Úrslit í Yngri flokki 2:

Eftir hádegi var svo kept í tveimur flokkum.

Yngri flokkur 1 var fyrir börn f.2016-17. Þar vann Róbert Heiðar Skúlason með fullu húsi, 5 vinningum. Í 2. sæti varð Emilía Klara Tómasdóttir með 4 vinninga og í 3. sæti varð Sarvina Jasline Nirmal Johnpaul, einnig með 4 vinninga, en lægri á oddastigum. Róbert Heiðar, Emilía Klara og Praanvi Kandukuri fengu árgangsverðlaunin fyrir f.2017 og Sarvina Jasline og Þorvaldur Orri Haraldsson fengu árgangsverðlaunin fyrir f.2016.

Verðlaunahafar í Yngri flokki 1

Verðlaunahafar í Yngri flokki 1

Úrslit í Yngri flokki 1:

Aðalkeppnin fór svo fram í opna flokknum, en þar leiddu saman hesta sína 44 krakkar á öllum aldri. Snemma móts lentu ýmsir af þeim sem fyrirfram voru hæst skrifaðir í vandræðum og misstu niður hálfa vinninga gegn yngri krökkum sem stóðu sig firnavel. Sannaðist þá nú sem áður, að í móti sem þessu eru engir öruggir vinningar. Einn keppandi missti þó enga hálfa vinninga niður og það var sá keppandi sem fyrirfram var hæst skrifaður, Haukur Víðis Leósson, og endaði hann á að vinna mótið með fullu húsi, 7 vinningum. Haukur er þar með Drengjameistari Reykjavíkur 2026 og fær nafn sitt ritað á hinn glæsilega farandbikar í fyrsta sinn. Fráfarandi Reykjavíkurmeistari síðustu tveggja ára, Pétur Úlfar Ernisson, lenti í öðru sæti með 6 vinninga. Hann gerði tvö jafntefli snemma móts og loks þegar hann virtist kominn á skrið var mótið búið. Tveir efstu menn gætu vel átt eftir að fá nafnið sitt letrað oftar á bikarinn, en Haukur er 11 ára og Pétur 10 ára. Í 3. sæti varð svo Theódór Eiríksson, með 5,5 vinning.

Verðlaunahafar í opnum flokki: Pétur Úlfar, Theodór Helgi, Haukur Víðis

Verðlaunahafar í opnum flokki: Pétur Úlfar, Theodór Helgi, Haukur Víðis

Keppnin um titilinn Stúlknameistari Reykjavíkur byrjaði sem algjör einstefna, en Emilía Embla Baldvinsdóttir Berglindardóttir var meðal efstu manna allt mótið og átti möguleika á að verða efst allra í mótinu fram í næstsíðustu umferð, en þá tapaði hún fyrir Hauki. Með því að sigra í síðustu umferð tryggði hún sér hinsvegar titilinn Stúlknameistari Reykjavíkur 2026 og er það þriðja árið í röð sem hún vinnur þann titil.

Stúlkna og drengjameistari Reykjavíkur: Emilía Embla og Haukur Víðis

Stúlkna og drengjameistari Reykjavíkur: Emilía Embla og Haukur Víðis

Úrslit í opna flokknum:

Árgangaverðlaun:

f.2018: Helgi Fannar Óðinsson
f.2017: Alexandra Vorontsova Aðalsteinsdóttir
f.2016: Eiður Jökulsson, Miroslava Skibina
f.2015: Pétur Úlfar Ernisson, Helgi Tómas Jónsson
f.2014: Haukur Víðis Leósson, Katrín Ósk Tómasdóttir
f.2013: Tristan Fannar Jónsson, Anh Hai Tran
f.2012: Emilía Embla Baldvinsdóttir Berglindardóttir, Emilía Sigurðardóttir
f.2011: Milosz Úlfur Olszewski, Servin Joyal Nirmal Johnpaul
f.2010: Theódór Eiríksson, Ingi Hrafn Ýmisson

55149458088_272e4ddd0d_c

Myndir frá mótinu: