EM ungmenna: Veronika vann í 6. umferð



Sjötta umferð Evrópumeistaramóts ungmenna fór fram í dag í Budva, Svartfjallalandi.  Veronika Steinunn Magnúsdóttir, sem teflir í flokki stúlkna sextán ára og yngri, vann sigur á belgískum keppanda og hefur 1 vinning.  Mikilvægur sigur hjá Veroniku og gott fyrir sjálfstraustið að komast á blað.

 

Vignir Vatnar Stefánsson, sem er í toppbaráttunni í flokki keppenda tíu ára og yngri, beið hins vegar lægri hlut fyrir azerskum keppanda og hefur 4,5 vinning í 6.-15. sæti.  Á morgun mætir Veronika norskri stúlku en Vignir pólskum dreng.  Sjöunda umferðin hefst kl. 14 að íslenskum tíma.

  • Chess-Results
  • Heimasíða mótsins
  • Skákir Vignis
  • Skákir Veroniku