Fámennt var á Fimmtudagsmóti Taflfélags Reykjavíkur að þessu sinni enda Skeljungsmótið í fullum gangi. Tíu keppendur tefldu 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Þau Helgi Brynjarsson, Kristján Örn Elíasson og Elsa María Kristínardóttir urðu öll efst og jöfn með 7 vinninga úr 9 skákum.
Elsa María var úrskurðuð sigurvegari þar sem þeir Helgi og Kristján Örn höfðu fengið vinning gegn Skottu í fyrstu tveimur umferðunum. Skýringin er sú að Eiríkur Björnsson mætti til leiks í þriðju umferð og tefldi því ekki við þá félaga en hann fékk 5 vinninga af 7.
Úrslit:
1-3 Helgi Brynjarsson, 7 af 9
Kristján Örn Elíasson, 7
Elsa María Kristínardóttir, 7
4-6 Matthías Pétursson, 5
Jón Gunnar Jónsson, 5
Eiríkur Björnsson, 5 af 7
7 Jon Olav Fivelstad, 4
8 Guðmundur Kr. Lee, 2
9-10 Tjörvi Schiöth, 1.5
Hörður Aron Hauksson, 1.5