Elsa María Kristínardóttir sigraði á fimmdudagsmótinu 28. apríl. Hún fékk 6 vinninga, tapaði bara fyrir Unnari Þór Bachmann, sem lenti í 2. sæti með 5 vinninga en hann tapaði fyrir tveimur ungum og mjög efnilegum skákmönnum: Gauta Páli Jónssyni og Leifi Þorsteinssyni. Gauti Páll og Kjartan Másson lentu í 3.-4.sæti með 4,5 vinninga. Keppendur voru óvenjufáir eða aðeins 10 en margar skákanna voru mjög spennandi og skemmtilegar. Björgvin Kristbergsson sem byrjaði á að tapa 4 fyrstu skákum kom sterkur inn eftir kaffihlé, þar sem boðið var upp á kók, pepsi, hraunbita, congabita og kökur og vann tvær skákir í röð! Úrslit urðu sem hér segir:
1. Elsa María Kristínardóttir 6 v.
2. Unnar Þór Bachmann 5 v.
3.-4. Gauti Páll Jónsson 4,5 v
3.-4. Kjartan Másson 4,5 v.
5. Dagur Kjartansson 4 v.
6.-7. Leifur Þorsteinsson 2,5 v.
6.-7. Finnur Kr. Finnsson 2,5v.
8.-10. Arnar Ingi Njarðarson 2 v.
8.-10. Björgvin Kristbergsson 2 v.
8.-10. Veronika Steinunn Magnúsdóttir 2 v.