Elsa María Kristínardóttir sigraði nokkuð örugglega á fimmtudagsmótinu í TR í gær. Elsa vann fyrstu fimm skákirnar en tap fyrir Gunnari Finnssyni í 6. umferð setti strik í reikninginn. Svo merkilega fór að þeir fjórir sem áttu möguleika á að ná Elsu, gerðu allir jafntefli í síðustu umferð en Elsa vann skjótan sigur. Hún varð því heilum vinningi fyrir ofan næstu menn. Úrslit urðu því sem hér segir:
1 Elsa María Kristínardóttir 6
2-3 Stefán Pétursson 5
Gunnar Finnsson 5
4-5 Jón Úlfjótsson 4.5
Jon Olav Fivelstad 4.5
6-8 Örn Stefánsson 4
Björgvin Kristbergsson 4
Jóhann Bernhard 4
9 Gunnar Friðrik Ingibergsson 3.5
10-11 Friðrik Daði Smárason 3
Ingvar Vignisson 3
12-14 Finnur Kr. Finnsson 2.5
Vignir Vatnar Stefánsson 2.5
Pétur Jóhannesson 2.5
15 Óskar Long Einarsson 2
16 Matthías Magnússon 0