Ekkert sumarhlé á Þriðjudagsmótum TR



Þriðjudagsmótin fara aldrei í frí, nema það sé tekið sérstaklega fram. Sem er gert afar sjaldan, því þau taka nánast aldrei frí!

Í byrjun júní verður sumaráætlun TR birt en búast má við Viðeyjarmótinu, Borgarskákmótinu og Árbæjarsafnsmótinu á sínum stað.

Nánar um Þriðjudagsmót:

Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.

Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).