Eiríkur Björnsson sigraði á fimmtudagsmóti gærkvöldsins en tefldar voru 2×7 umferðir með fimm mínútna umhugsunartíma. Eiríkur hlaut 11,5 vinning en fast á hæla hans kom annar TR-ingur, og ekki síður efnilegur, Þórir Benediktsson með 11 vinninga. Þriðji var svo hinn ungi Hellisbúi, Helgi Brynjarsson með 8 vinninga, en hann er á mikilli siglingu þessa dagana þó svo að hann hafi ekki átt roð í hina reyndu TR menn þetta kvöldið.
Heildarúrslit:
Place Name Feder Rtg Loc Score M-Buch. Buch. Progr.
  1   Eiríkur Björnsson,                    11.5     39.0  44.5   46.5
  2   Þórir Benediktsson,                   11       39.5  45.0   39.0
  3   Helgi Brynjarsson,                    8        42.5  48.0   37.5
  4   Jon Olav Fivelstad,                   7        43.5  49.0   32.5
 5-6  Sverrir Sigurðsson,                   6.5      44.0  49.5   26.0
      Geir Guðbrandsson,                    6.5      44.0  49.5   21.5
  7   Kristján Örn Elíasson,                4.5      44.0  51.5   20.0
  8   Pétur Axel Pétursson,                 1        44.0  55.0    1.0
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins