Skákstjórinn hafði sigur á fyrsta fimmtudagsmóti vetrarins. Að þessu sinni var teflt í húsnæði Skáksambands Íslands því verið var að stilla upp í húsakynnum TR fyrir Norðurlandamót öldunga sem hefst þar á laugardaginn eins og fram hefur komið í fréttum. Fimmtudagsmótið var fámennt að þessu sinni en afskaplega góðmennt, andrúmsloft vinalegt en þó þrungið keppnisanda, eins og jafnan. Úrslit í gærkvöldi urðu annars sem hér segir:
1 Eiríkur K. Björnsson 7
2 Magnús Matthíasson 6
3 Guðmundur Gunnlaugsson 4
4 Jan Olav Fivelstad 3
5-6 Hjálmar Sigurvaldason 2.5
Sigurjón Haraldsson 2.5
7 Björgvin Kristbergsson 2
8 Ingvar Vignisson 1