Eiríkur K. Björnsson sigraði á jöfnu og sterku fimmtudagsmóti í gær. Trúlega hefur ekki unnist sigur á fimmtudagsmóti í vetur á jafn fáum vinningum, án þess að kæmi til stigaútreiknings. Enginn fór taplaus frá mótinu og úrslit réðust í síðustu umferð en þá töpuðu báðir efstu menn (Eiríkur og Stefán Þór) skákum sínum! Úrslit í gærkvöldi urðu annars sem hér segir:
1 Eiríkur K. Björnsson 5.5
2-4 Elsa María Kristínardóttir 5
Stefán Þór Stefánsson 5
Kristján Örn Elíasson 5
5-6 Erlingur Þorsteinsson 4
Sindri Guðjónsson 4
7-8 Finnur Kr. Finnsson 3.5
Áslaug Kristinsdóttir 3.5
9 Ragnar Hermannsson 3
10 Csaba Daday 2
11 Björgvin Kristbergsson 1.5
12 Pétur Jóhannesson 1