Davíð Kjartansson öruggur sigurvegari á Þriðjudagsmóti



Davíð Kjartansson var í tvöföldu hlutverki á síðasta Þriðjudagsmóti, því samtímis þvi að sinna líflegri  verslun á vegum Skákbúðarinnar sem fór fram í rýminu við skáksalinn lét hann sig ekki muna um að taka líka þátt og vinna mótið.

Davíð gaf ekki mikil færi á sér og endaði með fullt hús vinninga. Hann var aldrei í hættu; einna helst var það Þórður Arnarson sem virtist hafa sæmilega vænlega stöðu á tímabili gegn honum í 3. umferð en Davíð sá við öllu og hafði sigur að lokum. Í öðru sæti varð síðan Kristófer Orri með 4 vinninga. Hann var þó taplaus en jafntefli í 2. umferð gegn Mohammadhossein Ghasemi og svo annað gegn Guðna Péturssyni í 4. umferð þýddi að hann tefldi aldrei við Davíð. Jafntefli eru dýr þegar umferðirnar eru ekki fleiri. Í þriðja sæti varð síðan áðurnefndur Mohammadhossein en hann varð efstur þriggja með 3½ vinning. Loks varð Sigurbjörn Magnússon efstur á frammistöðustigum. Hann varð í 14. sæti en eins og jafnan þegar stigalausir standa sig vel, telur frammistaðan mikið og ekkert nema gott um það segja.

Öll úrslit og stöðu Þriðjudagsmótsins má annars nálgast hér á chess-results.

Næsta Þriðjudagsmót verður síðan 20. september næstkomandi. Mótið hefst, eins og jafnan, stundvíslega klukkan 19:30, í Skákhöll TR í Faxafeni. Fimm umferðir; 10 mínútur og 5 sekúndna viðbótartími.