Borgarskákmótið haldið þriðjudaginn 17. ágúst kl. 14



Borgarskákmótið fer fram þriðjudaginn 17. ágúst, og hefst það kl. 14:00. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og stendur Taflfélag Reykjavíkur að mótinu.

Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst í skráningarforminnu til að liðka fyrir mótshaldi.

Þetta er í 36. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar verði á meðal keppenda. Í fyrra sigraði Vignir Vatnar Stefánsson, sem þá tefldi fyrir Húsasmiðjuna.

Verðlaun:

1.sæti 30.000 kr.

2.sæti 20.000 kr.

3.sæti 10.000 kr.

Skráningarform 

Þegar skráðir keppendur 

Mótið er hluti af Sumarmótaröð Reykjavíkur 2021.

Stigaútreikningur í mótinu:

  1. Bucholz -1
  2. Bucholz
  3. Sonneborn-Berger
  4. Innbyrðis úrslit

Í sumarmótaröðinni er keppt um 200.000 króna verðlaunasjóð. Stigakeppni sumarmótaraðarinnar virkar þannig að stig eru veitt fyrir efstu 10. sætin. 1 stig fyrir 10. sæti, 2. stig fyrir 9. sæti og svo framvegis. Í 1. sæti í hverju móti verða hins vegar 12 stig veitt. Stigakeppnir  með sama sniði verða einnig notaðar til að reikna út aukaverðlaunin. Þrjú bestu mót hvers þáttakanda gilda. Hin mótin í sumarmótaröðinni eru Mjóddarmótið, Viðeyjarmótið og Borgarskákmótið.

Staða efstu manna í sumarmótaröðinni að Mjóddarmóti og Viðeyjarmóti loknu:

  1. Davíð Kjartansson 24 stig
  2. Arnar Gunnarsson 14 stig
  3. Vignir Vatnar Stefánsson 12 stig
  4. Ingvar Þór Jóhannesson 9 stig
  5. Jón Viktor Gunnarsson 8 stig
  6. Dagur Ragnarsson, Guðmundur Kjartansson og Tómas Björnsson 7 stig