Borgarskákmót



Borgarskákmótið fer fram fimmtudaginn 18. ágúst, og hefst það kl. 16:00. Mótið fer fram venju samkvæmt í Ráðhúsi Reykjavíkur og standa Reykjavíkurfélögin, Taflfélag Reykjavíkur og Taflfélagið Hellir, að mótinu, sem og síðustu ár. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar taka þátt í því. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst til leiks en skráning er fram hér á Skák.is. Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis.

Einnig er hægt að skrá sig í í síma 866 0116 (Vigfús) og 862 6290 (Sigurlaug). Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Þetta er í 26. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigraði Guðmundur Gíslason, sem þá tefldi fyrir Tapas barinn.

Verðlaun:

  1. 15.000 kr.
  2. 10.000 kr.
  3. 5.000 kr.