Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 26. febrúar í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13 og stendur til ca. kl. 17. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10+5).
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.
Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2001 eða síðar. Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í mótinu. Nafnbótina Unglingameistari Reykjavíkur 2017 hlýtur sá keppandi sem verður hlutskarpastur þeirra sem hafa lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi. Einnig verða veitt verðlaun fyrir þrjár efstu stúlkurnar. Nafnbótina Stúlknameistari Reykjavíkur 2017 hlýtur sú stúlka sem verður hlutskörpust þeirra stúlkna sem hafa lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi.
Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í árgöngum 2001-2002, 2003-2004, 2005-2006, 2007-2008 sem og 2009 og yngri í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum).
Núverandi Reykjavíkurmeistarar eru Bárður Örn Birkisson og Esther Lind.
Skákmótið hefst kl. 13 og er aðgangur ókeypis. Skráning í mótið fer fram rafrænt og má nálgast skráningarformið hér. Einnig má finna skráningarformið í gula kassanum á skak.is. Upplýsingar um þegar skráða keppendur má nálgast hér.