Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 23. febrúar í skákhöll T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13 og stendur til kl.17. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s). Þátttaka er ókeypis. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.
Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2004 eða síðar. Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í opna flokknum sem og í stúlknaflokknum. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í öllum árgöngum í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum), elsti árgangurinn er 2004 og yngsti árgangurinn er 2014 og yngri. Nafnbótina Unglingameistari Reykjavíkur 2020 hlýtur sá keppandi sem verður hlutskarpastur þeirra sem hafa lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi. Nafnbótina Stúlknameistari Reykjavíkur 2020 hlýtur sú stúlka sem verður hlutskörpust þeirra stúlkna sem hafa lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi.
Núverandi Reykjavíkurmeistarar eru Kristján Dagur Jónsson og Anna Katarina Thoroddsen. Nánari upplýsingar um mótið í fyrra má finna hér.
Vakin er athygli á því að Birnu-kaffi verður opið og því verður veitingasala á mótsstað.