Atskákmót Reykjavíkur fer fram á chess.com í kvöld, þriðjudagskvöldið 22. desember, klukkan 19:30. Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 10+5. Teflt er í gegnum hópinn Team Iceland. Sigurvegari mótsins fær í verðlaun hina glæsulega skákævisögu Friðriks Ólafssonar. Skákirnar verða skoðaðar að móti loknu, þess til staðfestingar að allir hafi teflt heiðarlega! Núverandi atskákmeistari Reykjavíkur er Arnar Gunnarsson.