Atskákmót Reykjavíkur 29.-30. nóvember



Atskákmót Reykjavíkur verður haldið í húsakynum TR, Faxafeni 12, 29.-30. nóvember næstkomandi. Tefldar verða níu skákir með tímamörkunum 15+5 (15 mínútur á skákina að viðbættum fimm sekúndum á hvern leik) á tveimur kvöldum. Fyrstu fimm umferðirnar verða mánudagskvöldið 29. nóvember klukkan 19:30 og síðustu fjórar verða þriðjudagskvöldið 30. nóvember klukkan 19:30. Seinni hluti mótsins, þriðjudagskvöldið, kemur í stað venjulegs Þriðjudagsmóts. Atskákmót Reykjavíkur hefur undanfarið verið haldið af Skákfélaginu Hugin, og þar áður Helli, en síðan 2019 hefur TR séð um mótahaldið. Þess má geta að hér áður fyrr var mótið haldið af TR, en það var haldið fyrst árið 1992. Mótið er öllum opið. Núverandi atskákmeistari Reykjavíkur er Davíð Kjartansson. Atskákmeistarar Reykjavíkur frá upphafi.

Vegna samkomutakmarka miðast keppandalistinn við að hámarki 48 manns. Skráningu lýkur um leið og 48 hafa skráð sig. Ef einhver þarf að afskrá skal láta strax vita á taflfelag@taflfelag.is 

SKRÁNINGARFORM 

Þegar skráðir keppendur

Þáttökugjöld:

Fullorðnir: 3000 kr. 17 ára og yngri: 1500 kr. Stórmeistarar borga ekki þáttökugjöld.

Verðlaun:

1. 30.000.-
2. 20.000.-
3. 10.000.-
Efstur u2000 (atskákstig): Bókaverðlaun