Atskákkeppni taflfélaga fer fram 6.-7. nóvember – Skráningu lýkur á laugardag!



Stuðst við tveggja kvölda dagskrá: Teflt er mánudagskvöldið 6. nóvember klukkan 19:30 og þriðjudagskvölið 7. nóvember klukkan 19:30. Þriðjudaginn 7. nóvember fellur hefðbundið þriðjudagsmót niður. Mótið fer fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12.

 

Tefldar verða 9. umferðir eftir svissnesku kerfi, umferðir 1-5 á mánudeginum og 6-9 á þriðjudeginum. Teflt verður með tímamörkunum 10+5, 10 mínútur á mann á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt verður á 6 borðum. Liðstjórum ber að skila inn styrkleikalista sinna sveita áður en mótið hefst, til dæmis útprentað til skákstjóra við upphaf móts, eða með tölupósti á taflfelag@taflfelag.is. Sama fyrirkomulag og á Íslandsmóti skákfélaga, það verður alltaf að halda styrkleikaröðinni þegar skákmenn hvíla og aðrir koma inn í staðinn. Hvert skákfélag má senda allt að þrjár sveitir til leiks. Þátttökugjald á sveit er 12.000 krónur, en ókeypis er fyrir þriðju sveit hvers liðs.

 

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. Það lið sem hlýtur flesta vinninga eru atskákmeistarar taffélaga 2023. Ef lið verða jöfn á vinningum skera matchpoint stig og innbyrðis viðureignir úr um röð sveita. Ef enn er jafnt eftir þessi Tie-break verður haldin aukakeppni um titilinn.

 

Þátttakendur verða að tefla fyrir það félag sem þeir eru skráðir í samkvæmt félagagrunni íslenskra skákmanna. Skákmenn sem ekki eru skráðir í félag mega þó taka þátt í mótinu með einhverju félagi hvort sem þeir séu með stig eða ekki.

 

Þó verður hægt er að komast til móts við félög sem ná ekki sex manns, með því að bjóða upp á í mesta lagi tvo aukamenn með félagi sem sendir aðeins eina sveit til leiks. Sveit með aukamenn innan sinna raða geta hins vegar ekki lent í verðlaunsæti í mótinu.

 

Birnukaffi verður opið á meðan mótinu stendur. 

 

Atskákmeistarar taflfélaga 2022 urðu skákdeild Breiðabliks.

 

Skráningarform 

 

Þegar skráð lið