Atskákkeppni Taflfélaga fer fram 4.-5. nóvember



Stuðst við tveggja kvölda dagskrá: Teflt er mánudagskvöldið 4. nóvember klukkan 19:30 og þriðjudagskvölið 5. nóvember klukkan 19:30. Þriðjudaginn 5. nóvember fellur hefðbundið þriðjudagsmót niður. Mótið fer fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12.

Tefldar verða 9. umferðir eftir svissnesku kerfi, umferðir 1-5 á mánudeginum og 6-9 á þriðjudeginum. Teflt verður með tímamörkunum 10+5, 10 mínútur á mann á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt verður á 6 borðum. Hægt er að hafa 0.-4. varamenn. Það verður að halda styrkleikaröðinni og varamenn koma alltaf í röð á eftir aðalmönnum. Skákmenn flakka ekki milli sveita (A-B, B-C) heldur er sami hópurinn í hverri sveit. Pláss er fyrir allt að þrjár sveitir frá einu félagi. 

Liðstjórum ber að skila inn styrkleikalista sinna sveita áður en mótið hefst í tölvupósti til skákstjóra í síðasta lagi klukkan 16:00 mánudaginn 4. nóvember. Hvert skákfélag má senda allt að þrjár sveitir til leiks. Þátttökugjald á sveit er 12.000 krónur, en ókeypis er fyrir þriðju sveit hvers liðs. Mótið er fjáröflunarmót fyrir starfið í Taflélagi Reykjavíkur og eitt fjölmennasta skákmót á vegum félagsins ár hvert. 

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. Það lið sem hlýtur flesta vinninga eru atskákmeistarar taffélaga 2024. Ef lið verða jöfn á vinningum skera matchpoint stig og innbyrðis viðureignir úr um röð sveita. Ef enn er jafnt eftir þessi Tie-break verður haldin aukakeppni um titilinn.

Þátttakendur verða að tefla fyrir það félag sem þeir eru skráðir í samkvæmt félagagrunni íslenskra skákmanna. Skákmenn sem ekki eru skráðir í félag mega taka þátt í mótinu með einhverju félagi hvort sem þeir eru með stig eða ekki.

Þó verður hægt er að komast til móts við félög sem ná ekki sex manna sveit, með því að bjóða upp á í mesta lagi tvo lánsmenn með félagi sem sendir aðeins eina sveit til leiks. Sveit með lánsmenn innan sinna raða geta hins vegar ekki lent í verðlaunasæti í mótinu.

Birnukaffi verður opið á meðan mótinu stendur. 

Atskákmeistarar taflfélaga 2023 eru Víkingaklúbburinn.

Mótsstjóri: Gauti Páll Jónsson (gauti.pj at hotmail.com)

Skákstjóri: Þórir Benediktsson (thorirbe76 at gmail.com)

Skráningarform 

Þegar skráðar sveitir