Barna- og unglingameistaramót TR og stúlknameistaramót TR fór fram mitt í sannkölluðu vetrarfríi, en fyrsti snjórinn vitjaði Reykjavíkur í nótt.
Þrátt fyrir skólafrí, þátttöku 17 íslenskra ungmenna á HM í Grikklandi og stíft mótahald undanfarið var þátttaka ágæt í mótinu, en 15 tóku þátt í Barna- og unglingameistaramótinu en 8 í stúlknameistaramótinu.
Tefldar voru 15 mín. skákir og gaman var að sjá hvað krakkarnir nýttu tímann vel, en það voru gjarnan nokkrar skákir sem vörðu í heilan hálftíma.
Aron Þór Mai varð unglingameistari TR 2015. Sigur hans var sanngjarn og sannfærandi. Aron hlaut 6 vinninga og varð einum og hálfum vinningi á undan næsta manni. Aron sýndi mikla keppnishörku og stóð sjaldan tæpt, en tók yfirvegaða áhættu.
Í 2.-5.sæti með 4,5 vinninga urðu Mykhaylo Kravchuk, Þorsteinn Magnússon, Alexander Oliver Mai og Hjörtur Kristjánsson og urðu Mykhaylo og Þorsteinn í 2. og 3. sæti á stigum. Mykhaylo hlaut jafnframt verðlaun fyrir bestan árangur 11-12 ára.
Sérstök verðlaun voru veitt í fjórum aldursflokkum, 8 ára og yngri, 9-10 ára , 11-12 ára og 13-15 ára.
Bestum árangri 8 ára og yngri náði Gunnar Erik Guðmundsson. Framtíðardrengur þar sem hlaut 2 vinninga og dýrmæta reynslu.
Bestum árangri 9-10 ára náði Kristján Dagur Jónsson, sem átti frábært mót. Kristján hlaut 4 vinninga og náði góðum árangri á móti sterkum andstæðingum. Kristján er í mikilli framför og með leikgleðina að vopni er hann öllum skeinuhættur andstæðingur.
Í flokki 11-12 ára varð Mykhaylo Kravchuk efstur eftir sigur á Daníel Erni Njarðarsyni í lokaumferðinni. Efstur í flokki 13-15 ára varð sigurvegari mótsins Aron Þór Mai.
Ylfa Ýr Welding Hákonardóttir sigraði glæsilega í stúlknameistaramótinu, en hún hlaut 6,5 vinninga, gerði einungis jafntefli við Svövu en vann aðrar. Ylfa hlaut jafnframt verðlaun í flokki 9-10 ára og það er ljóst að hér er mikið efni á ferð.
Í 2.sæti varð Valgerður Jóhannesdóttir með 6 vinninga og náði jafnframt bestum árangri 13-15 ára.
Stúlknameistari TR varð hinsvegar Svava Þorsteinsdóttir sem hlaut 5,5 vinninga og lenti í 3.sæti í mótinu.
Bestum árangri 8 ára og yngri náði svo hin stórefnilega Elsa Kristín Arnaldardóttir, sem hlaut 3,5 vinninga.
Taflfélag Reykjavíkur þakkar þátttakendum í mótinu kærlega fyrir skemmtilega og drengilega keppni og óskar sigurvegurunum innilega til hamingju með árangurinn.