Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2413), sigraði Fide meistarann, Davíð Ólafsson (2327), í áttundu umferð landsliðsflokks Skákþings Íslands sem fram fór í dag. Guðmundur hafði svart og fékk nokkuð góða stöðu út úr byrjuninni. Í 27. leik fórnaði Davíð riddara fyrir kóngssókn sem aldrei náði flugi og gafst Davíð upp eftir 45 leiki.
Guðmundur er í 7.-8. sæti með 3,5 vinning en efstur með 7 vinninga og tveggja vinninga forskot er stórmeistarinn, Henrik Danielsen (2473).
Níunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 16 en þá mætir Guðmundur alþjóðlega meistaranum, Braga Þorfinnssyni (2360).
- Heimasíða SÍ
- Chess-Results
- Skákirnar í beinni