Æskan og ellin um næstu helgi!



Skákmótið ÆSKAN OG ELLIN, þar sem kynslóðirnar mætast, verður haldið í ellefta sinn laugardaginn 25.  október  í Skákhöllinni í Faxafeni.

 

RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara, Taflfélagi Reykjavíkur  og OLÍS –gerðu í fyrra  með sér  stuðnings- og samstarfssamning um framkvæmd mótsins, til að auka veg þess og tryggja  það í sessi til framtíðar.  ÆSIR,  hinn skákklúbbur eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu leggur mótinu lið.

 

Fyrstu 9 árin var mótið verið haldið í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðar-kirkju, þar sem Riddarinn hefur aðsetur sitt og eldri skákmenn hittast til tafls vikulega allan ársins hring.  Fyrri mót af þessu tagi, þar sem kynslóðirnar mætast, hafa vakið verðskuldaða athygli, verið afar vel heppnuð  og til mikillar ánægju fyrir alla þátttakendur,  jafnt yngri sem eldri.  Í fyrra var yfir 80 ára aldursmunur milli yngsta og elsta keppandans. Þá sigraði Bragi Halldórsson (64) en Oliver Aron Jóhannesson(15) og Vignir Vatnar Stefánsson (10) komu næstir.

 

Verðlaunasjóður mótsins nú er kr. 100.000, (50.000; 25.000; 15.000; 10.000) auk þess sem veitt verða aldurflokkaverðlaun í 3 flokkum ungmenna og öldunga. Gjafabréf  fyrir flugmiðum á mót erlendis með Icelandair fyrir sigurvegara í barna og unglingaflokkum, 9 ára og yngri; 19-12 ára og 13-15 ára.  Úttektarkort fyrir eldsneyti hjá OLÍS fyrir efstu menn í 3 öldungaflokkum, 60-69 ára; 70-79 ára og 80 ára og eldri. Auk þess fá yngsti og elsti keppandi mótsins heiðursverðlaun. Fagrar  verðlaunastyttur fyrir sigurvegara mótsins og verðlaunapeningar  í öllum flokkum auk bókaverðlauna ofl.

 

Þátttaka í mótinu er ókeypis og miðast við börn og ungmenni á grunnskólaaldri, 15 ára og yngri og roskna skákmenn, 60 ára og eldri. Mótið hefst kl. 13 og tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.   

 

Mótsnefnd skipa þeir Björn Jónsson, formaður TR, Einar S. Einarsson, formaður Riddarans og Páll  Sigurðsson, skákstjóri. 

 

Skráning til þátttöku fer fram á www.skak.is og www.taflfelag.is  vikuna fyrir mót.  Hámarksfjöldi keppenda miðast við 100 og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst og mæta svo tímanlega á mótsstað.