Sigurbjörn Björnsson vann Viðeyjarmótið með fullu húsi




Sigurbjörn vann örugglega!

Viðeyjarmóti Taflfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar lauk sunnudaginn 19. júlí með glæsilegum sigri FM Sigurbjörns Björnssonar. Sigurbjörn vann allar níu skákir sínar og hafnaði því einn í efsta sæti með fullt hús stiga, 9 af 9 mögulegum.

Í öðru sæti varð IM Dagur Ragnarsson með 7 vinninga, en FM Róbert Lagerman hafnaði í þriðja sæti, einnig með 7 vinninga, en lægri stigaútreikning. Kristján Örn Eliasson varð fjórði með 6 vinninga og Matthias Kjeld fimmti, einnig með 6 vinninga.

Alls tóku 27 skákmenn þátt í mótinu sem var teflt í níu umferðum samkvæmt svissneska kerfinu. Viðeyjarmótið hefur fest sig í sessi sem skemmtilegur sumarviðburður í mótahaldi Taflfélags Reykjavíkur og var þátttaka og keppni afar góð að þessu sinni.


Teflt á annarri hæð Viðeyjarstofu.

 


Fremstur er Hörður Jónasson,

 


Mótshaldarar í góðum gír!