Emil Finnsson Fenger sigurvegari Sumarsyrpu TR I Katrín Ósk Tómasdóttir efst stúlkna



Helgina 12-14 júní fór fram fyrsta Sumarsyrpa TR sumarið 2026. Þrátt fyrir sólríka daga og mikinn hita voru keppendur tilbúnir að eyða helginni inni fastir við skákboriðið í Faxafeninu.

Sumarið er oft sá tími þegar dregið er úr taflmennsku en þessa helgina var samt sem áður góð mæting þar sem 39 keppendur voru skráðir til leiks.

Þrátt fyrir að allir gluggar væru opnir og loftkælingin í gangi var gífurlegur hiti inni í keppnisalnum stærsta hluta mótsins sem reyndi mikið á keppendur og minnti á erlendar keppnisaðstæður.

55331209518_98d9f140e9_k

Eftir fyrstu umferðina á lokdeginum voru það Jóel Helmer og Emil Fenger sem leiddu báðir mótið með

6.umferð: Jóel Helmer og Emil Fenger

6.umferð: Jóel Helmer og Emil Fenger

Í sjöttu umferð mættust Jóel Helmer og Emil. Eftir að hafa fengið öflugt tak á stöðunni fór Jóel aðeins of beinskeitt að opna stöðuna á miðborðinu og Emil Fenger kláraði skákina nokkuð sannfærandi í endataflinu.

Í lokaumferðinni var Emil Fenger einn efstur og mætti Dagur Sverrisson og Emil Fenger. Dagur tefldi vel og byggði upp góða stöðu en Emil sigraði skákina eftir smá flækjur í miðtaflinu.
Emil endaði einn efstur með vinning og fór ósigraður í gegnum mótið. Í öðru sæti kom Jóel Helmer með vinning eftir sigur sinn á Óðin Darra.

7.umferð: Katrín Ósk Tómasdóttir og Ringaudas Skucas

7.umferð: Katrín Ósk Tómasdóttir og Ringaudas Skucas

Síðasta skákin í lokaumferðinni var skákin Ringaudas og Katrín Ósk sem endaði í jafntefli í endataflinu.  Ringaudas , Katrín Ósk og Eiður Jökulsson enduðu öll með 5 vinninga en Ringaudas reyndist efstur á oddastigum.

Mikil samkeppni var um stúlknaverðlauin og þær Miroslava og Likhithasri  sem áttu báðar gott mót enduðu með 4½ vinning en Miroslava reyndist örlítið hærri á oddastigum.

lokstaðan eftir 7.umferðir

Lokstaðan eftir 7.umferðir

 

Aðalverðlaun: Jóel Helmer Tobiasson, Emil Finnsson Fenger, Ringaudas Skucas

Aðalverðlaun: Jóel Helmer Tobiasson, Emil Finnsson Fenger, Ringaudas Skucas

🥇Emil Finnsson Fenger 6½

🥈Jóel Helmer Tobisasson 5½

🥉Ringaudas Skucas 5

Stúlknaverðlaun: Likhithasri Sathiyaraj, Katrín Ósk Tómasdóttir, Miroslava Skibina

Stúlknaverðlaun: Likhithasri Sathiyaraj, Katrín Ósk Tómasdóttir, Miroslava Skibina

🥇Katrín Ósk Tómasdóttir 5

🥈Miroslava Skibinia 4½ (22½)

🥉Likhithasri Sathiyaraj 4½ (21½)

Taflfélag Reykjavíkur vill þakka keppendum fyrir þátttöku á mótinu og vonast til að sjá sem flesta á

Næsta mót í Sumarsyrpuröðinni verður haldið helgina 10-12 júlí.

Hægt er að sjá lokastöðu mótsins á úrslitasíðu mótsins á Chess-results: Sumarsyrpu T.R I 2026

Hægt er að sjá myndir frá mótinu á ljósmyndasíðu Skáksambandsins Sumarsyrpu I 2026 | Flickr