Stúlkna- og drengjameistaramót Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 15. mars
Þátttökugjöld eru kr.1500 (í alla flokka).
Skráning fer fram í gegnum Sportabler.
Skráningarform:
Mótið er telft í fjórum flokkum
Skráning í alla flokka fer fram hér:
Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2010 eða síðar.
Aðalkeppnin fer fram í einum opnum flokki og þar verður keppt um sæmdarheitin Drengjameistari Reykjavíkur 2026 og Stúlknameistari Reykjavíkur 2026. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s). Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.
Aðalkeppnin hefst kl.13 og má reikna með að hún standi til kl.17 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.12.45.
Boðið verður upp á þrjá yngri flokka:
Yngri flokkur 1 (f.2016-2017)
Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s).
Yngri flokkur hefst kl.13 og má reikna með að standi til kl.15.30 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.12.45.
Yngri flokkur 2 (f.2018)
Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 7 mínútur á skák, auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (7m+3s). Yngri flokkur 2 hefst kl.10 og má reikna með að standi til kl.12 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.9.45.
Yngri flokkur 3 (f.2019 og síðar)
Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 7 mínútur á skák, auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (7m+3s).
Yngri flokkur 3 hefst kl.10 og má reikna með að standi til kl.12 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.9.45.
Krakkar sem eru gjaldgengir í yngri flokkana mega velja hvort þau tefla í aðalkeppninni eða í yngri flokkunum.
Verðlaun í opna flokknum:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í öllum árgöngum. Elsti árgangurinn er 2010 og yngsti árgangurinn er 2019 og yngri.
Nafnbótina Drengjameistari Reykjavíkur 2026 hlýtur sá drengur sem verður hlutskarpastur þeirra sem hafa lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi.
Nafnbótina Stúlknameistari Reykjavíkur 2026 hlýtur sú stúlka sem verður hlutskörpust þeirra stúlkna sem eiga lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi.
Verðlaun í yngri flokki 1:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í báðum árgöngum (2016 og 2017).
Verðlaun í yngri flokk 2:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng.
Verðlaun í yngri flokk 3:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í árganginum 2019 og 2020 og yngri.
Núverandi Reykjavíkurmeistarar eru Pétur Úlfar Ernisson og Emilía Embla Baldvinsdóttir Berglindardóttir.
Skráðir Keppendur: (uppfært síðar)
Ef einhverjar spurningar vakna má senda fyrirspurn á taflfelag@taflfelag.is.
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins
