Anh Hai Tran Sigurvegari Friðrikssyrpu III, Katrín Ósk efst stúlkna



Helgina 13-15 febrúar fór fram þriðja Friðrikssyrpa Taflfélags Reykjavíkur. Mótið var að þessu sinni í fjölmennari kanti og voru skráðir til leiks 61 keppandi.  Eins og venjulega var teflt alla helgina og á milli skáka var stundum farið yfir skákirnar og greint hvað betur hefði mátt fara.

20260215_130907

Pétur Eysteinn og Theodór Nóel

Pétur Eysteinn og Theodór Nóel

Skák mótsins var telft í þriðju umferð hjá Pétri og Theodór. Eftir að Theodór komst drottingu yfir skipti skákin um eigendur og þá var það Pétur sem var kominn með yfirburðarstöðu. Með klókinum náði Theodór að búa til mótspil með að ýta peði sínu upp í borð og þá leit út fyrir að hann væri að sigla skákinni heim. Í endataflinu voru báðir keppendur orðnir vel þreyttir og náði Pétur að koma peði upp í borð og sækja sér drottningu. Að lokum endaði skákin með patti sem var einhverju leyti sangjört úrslit miðað við allt það sem hafði gengið á.

Fyrir lokadaginn var Anh Hai Tran efstur með fullt hús stiga. Hélt hann sigurgöngu sinni allt fram í loka umferðina. Fast á eftir honum komu bæði Helgi Fannar og Katrín Ósk sem gátu bæði náð honum með sigri.

Anh hai Tran og Katrín Ósk

Anh hai Tran og Katrín Ósk

Á efsta borði mættust Anh hai og Katrín Ósk. Eftir fjöruga taflmennsku endaði Katrín á að vinna skiptamun en Anh hai náði að finna leið til að þvinga fram þráleik.

Helgi Fannar og Róbert Heiðar

Helgi Fannar og Róbert Heiðar

Á öðru borði mætust Helgi fannar og Róber Heiðar. Helgi fékk betra úr byrjuninni og náði að byggja upp vinningsstöðu með meira rými. Þegar skákin hefði átt að klárast tók Helgi upp á því að fá sér auka hvítreita biskup. Staðan var auðvitað áfram betri en tók aðeins lengri tíma að vinna úr. Helgi var þá orðin næst á eftir Anh hai með sex vinninga.

Katrín Ósk, Jakub Sokol og Gunnar Þór urðu síðan jöfn með 5½ vinning en Katrín endaði ofar á oddastigum.

Úrslit eftir 7.umferðir

Úrslit eftir 7.umferðir

Helgi Fannar, Anh hai, Katrín Ósk

Helgi Fannar, Anh hai, Katrín Ósk

🥇Anh Hai Tran 6½

🥈Helgi Fannar Óðinsson 6

🥉Katrín Ósk Tómasdóttir 5½

Emílía Sigurðardóttir, Katrín Ósk, Likhithasri

Emílía Sigurðardóttir, Katrín Ósk, Likhithasri

🥇Katrín Ósk Tómasdóttir 5½

🥈Likhithasri Sathiyaraj 5

🥉Emilía Sigurðardóttir 4½

Taflfélag Reykjavíkur vill þakka keppendum fyrir þátttöku á mótinu og vonast til að sjá sem flesta á næsta móti í mars.

Hægt er að sjá lokastöðu mótsins á úrslitasíðu mótsins á Chess-results: Friðrikssyrpa T.R III