Skákþing Reykjavíkur 2026 hefst miðvikudaginn 7. janúar kl. 18.30. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.
Keppendur geta tekið tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan. Ef taka á yfirsetu í 1. umferð skal merkja við það á neðangreindu skráningarformi. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu. Ekki eru leyfðar frestanir í mótinu.
Teflt er á sunnudögum klukkan 13:00 og miðvikudögum klukkan 18:30.
Dagskrá:
- umferð miðvikudag 7. jan 18:30
- umferð sunnudag 11. jan 13:00
- umferð miðvikudag 14. jan 18:30
- umferð sunnudag 18. jan 13:00
- umferð miðvikudag 21. jan kl. 18:30
- umferð sunnudag 25. jan 13:00
- umferð miðvikudag 28. jan 18:30
- umferð sunnudag 1. feb 13:00
- umferð miðvikudag 4. feb 18:30
Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Tímamörk:
90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.
Skákstjórn:
Daði Ómarsson og Jon Olav Fivelstad
Aðalverðlaun
- 1. sæti kr. 110.000
- 2. sæti kr. 55.000
- 3. sæti kr. 35.000
Aukaverðlaun
Aukaverðlaun eru þannig að frá og með 11. skákmanni miðað við upphafsröð í mótinu (strarting rank) verður skákmönnum, þaðan og niður, skipt í fjórar jafnstórar stigagrúbbur. Sem dæmi: Taki 50 manns þátt í mótinu þá væri þetta svona:
Efstu 10 keppa ekki um aukaverðlan, heldur aðalverðlaun.
Keppendur númer 11.-20. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun A.
Keppendur númer 21.-30. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun B.
Keppendur númer 31.-40. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun C.
Keppendur númer 41.-50. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun D.
Sá sem endar mótið efstur í A grúbbu vinnur því aukaverðlaun A, og svo framvegis.
Aukverðlaun í öllum flokkunum fjórum eru 12.500 krónur.
Oddastig (tiebreaks):
1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger
Þátttökugjöld:
kr. 8.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 4.000 fyrir 17 ára og yngri.
Frítt fyrir Stórmeistara
Skráðir keppendur:
Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Oliver Aron Jóhannesson.
Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.
Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins
