Formaðurinn með fullt hús á þriðjudagsmóti!



Á síðasta þriðjudagsmóti mættu 18 skákmenn til leiks. Eftir að hafa legið undir felld í nokkrar mínútur ákvað formaður TR, Ingvar Þór Jóhannesson, að taka þátt. Það reyndust vera gæfuspor því hann kom og sigraði með 5 vinningum af 5 mögulegum. Í öðru sætinu var svo fyrrum formaður TR, Gauti Páll Jónsson, sem eingöngu tapaði fyrir eftirmanni sínum. Stigaverðlaunin hlaut svo Ricardo Jimenez.

Mótið á chess-results.

– Þorsteinn Magnússon, skákstjóri