Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson tapaði fyrir venezúelska alþjóðlega meistaranum Jose Rafael Gascon (2268) í annari umferð alþjóðlegs móts sem fer fram í Sabadell á Spáni en vann síðan stigalágan (2092) keppanda, einnig frá Venezuela, í þriðju umferð sem fram fór í dag.
Guðmundur hefur því 2 vinninga að loknum þremur umferðum en tveir keppendur hafa fullt hús vinninga, armenski stórmeistarinn og stigahæsti keppandi mótsins, Karen Movsziszian (2508), og spænski stórmeistarinn Pantoja Miguel Munoz (2468). Í fjórðu umferð sem fer fram á morgun hefur Guðmundur svart gegn Fide meistaranum Arian Gonzalez Perez (2466).
32 keppendur taka þátt í flokki Guðmundar, þar á meðal tveir stórmeistarar og níu alþjóðlegir meistarar. Stigahæstur keppenda er armenski stórmeistarinn Karen Movsziszian (2524) en Guðmundur er sjötti í stigaröðinni. Tefldar eru níu umferðir sem allar hefjast kl. 15 að íslenskum tíma.
- Chess-Results
- Heimasíða mótsins