Danski alþjóðameistarinn Jakob Vang Glud (2520) tryggði sér í dag sinn annan áfanga að stórmeistartitli. Þá gerði hann stutt jafntefli við pólska stórmeistarann Krzysztof Bulski (2534) í níundu og næstsíðustu umferðinni á Politiken Cup og hefur nú 7 vinninga. Jakob er búinn að tefla fantavel á mótinu, ekki tapað skák og verið öryggið uppmálað.
Glud er landanum að góðu kunnur því hann hefur margsinnis teflt með Taflfélagi Reykjavíkur á Íslandsmóti skákfélaga. Erlendir liðsmenn T.R. hafa farið hamförum undanfarið og er skemmst að minnast sigurs Kryvoruchko á úkraínska meistaramótinu, og sigur Oleksienko á Czech Open.
Nú verður spennandi að sjá hvort Glud nær að landa þriðja og síðasta áfanganum að stórmeistartitli á hinu geysiöfluga Stórmeistaramóti Taflfélags Reykjavíkur í haust, en það hefst fyrsta október.