Fjórða sigurskák Guðmundar Kjartanssonar á Hastings mótinu leit dagsins ljós í dag þegar hann lagði stórmeistarann, S. Haslinger (2506), í 7. umferð, að því er virtist næsta auðveldlega. Guðmundur vann mann í 28. leik og eftirleikurinn var auðveldur en stórmeistarinn gaf eftir 56 leiki.
Guðmundur hefur nú 5 vinninga af 7 og er væntanlega kominn í hóp 10 efstu manna en staðan hefur ekki verið uppfærð þegar þetta er skrifað. Þess má geta að fyrirfram var Guðmundur í kringum 60 hvað varðar styrkleika. Sannarlega glæsilegur árangur hjá TR-ingnum knáa sem heldur áfram för sinni upp stigalistann.
8. umferð fer fram á morgun, sunnudag, og verður skák Guðmundar sýnd beint á netinu.
- Heimasíða mótsins
- Skákirnar í beinni