1. umferð Íslandsmóts skákfélaga fór fram í Rimaskóla í gærkvöld. a-sveit TR lenti í vandræðum með kollega sína í b-sveitinni en hafði 5-3 sigur að lokum:
a-sveit – b-sveit
Hannes Hlífar – Hrafn Loftsson 1-0
Sebastien Maze – Júlíus Friðjónsson 1-0
Þröstur Þórhallsson – Miziuga 1-0
Stefán Kristjánsson – Björn Þorsteinsson 1/2
Guðmundur Kjartansson – Daði Ómarsson 1-0
Benedikt Jónasson – Stefán Briem 0-1
Bergsteinn Einarsson – Eiríkur Björnsson 0-1
Arnþór Sævar – Kristján Örn 1/2
Í 3. deildinni mættust TR-ingar einnig innbyrðis en þar sigraði c-sveitin d-sveitina 4-2. e-sveit TR atti kappi við d-sveit Haukamanna í 4. deildinni og hafði nauman sigur, 3,5-2,5.
2. umferð hefst í dag kl. 11.
Frekari upplýsingar má finna á skak.is