Lið TR náði jafntefli gegn Salaskólakrökkum í d-flokki Boðsmóts TR. Það var Hjálmar Sigurvaldason sem gaf tóninn með sigri á Páli Andrasyni. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir vann einnig, en Jóhanna Björg Jóhannsdóttir svaraði fyrir Salaskólakrakka. Síðan unnu krakkarnir á 4. borði, en lið TR er ekki með 4. borðsmann.
Úrslit 3. umferðar:
Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir – Birkir Karl Sigurðsson 1-0
Kristján H. Pálsson – Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 0-1
Hjálmar Sigurvaldason – Páll Andrason 1-0
“Skotta” – Ragnar Eyþórsson 0-1*
Staðan er nú 8-4 fyrir Salaskólakrakka sem hafa þar með tryggt sér sigur í keppninni, því þau munu fá a.m.k. vinning gegn Skottu.
4. og síðasta umferð verður tefld föstudagskvöld kl.19. Þá mætast:
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir
Páll Andrason – Kristján Heiðar Pálsson
Ragnar Eyþórsson – Hjálmar Sigurvaldason
Birkir Karl Sigurðsson – “Skotta”