Börn & unglingar u16
Skráningarform á allar æfingar Haustönn 2026
Skákæfingar í Framhaldsflokki I á haustönn 2026 hefjast laugardaginn 5.sept . Æfingar eru haldnar í húsnæði félagsins að Faxafeni 12.
Æfingarnar fylgja auglýstri dagskrá nema annað sé kynnt á Abler, og á Facebookhópnum Taflfélag Reykjavíkur – Skákforeldrar.
Skráning fer fram í gegnum Abler og hægt er að smella á tengilinn hér að ofan og ganga frá skráningu. Eigi einhverjir í erfiðleikum má senda póst á taflfelag@taflfelag.is.
Við vekjum athygli á að það er alltaf í boði að koma og prófa æfingu einu sinni frítt án skuldbindingar.
Skákæfingar Taflfélags Reykjavíkur eru fjölbreyttar og sérstaklega hannaðar til þess að mæta þörfum sem flestra áhugasamra skákbarna og unglinga. Á æfingum félagsins fá nemendur markvissa kennslu og persónulega leiðsögn sem nýtist þeim sem grunnur að framförum í skáklistinni. Sem fyrr er þjálfarateymi félagsins skipað mörgum af reynslumestu skákkennurum landsins.
Tímasetningar og æfingagjöld ásamt nánari upplýsingum má sjá hér að neðan.
Systkinaafsláttur er veittur í formi 10% afsláttar.
Mikilvægt er að skrá þátttakendur á æfingarnar með því að skrá sig í gegnum skráningarformið. Öllum er þó frjálst að prófa eina æfingu án skuldbindingar. Aðstandendur geta nýtt sér Frístundakort Reykjavíkurborgar fyrir börn/unglinga sem eru með lögheimili í Reykjavík. Athygli er vakin á því að ekki þarf að skrá börn í manngangskennslu.
Allar nánari upplýsingar sem og leiðbeiningar um hvaða æfingar henta hverjum og einum veita skákþjálfarar félagsins.
Æfingatími á Haustönn 2026:
Manngangskennsla
Lau kl.10:40-11:00 (frítt)
Á þessari æfingu verður eingöngu manngangurinn kenndur. Þessi æfing er hugsuð fyrir börn á grunnskólaaldri og elstu börn leikskóla, af báðum kynjum, sem vilja læra mannganginn frá grunni eða vilja læra tiltekna þætti manngangsins betur. Börnin munu læra að hreyfa alla mennina auk þess sem þau læra reglur sem gilda um hrókeringu og framhjáhlaup. Þegar barn hefur náð góðum tökum á mannganginum að mati skákþjálfara þá er það tilbúið að taka næsta skref sem er Byrjendaæfing. Ekki þarf að skrá börn sérstaklega í manngangskennslu.
Umsjón með æfingunum hefur Torfi Leósson (sími: 697 3974).
Byrjendaæfing
Lau kl.11:15-12:15 (20.500kr)
æfingar hefjast laugardaginn 5.sept
Þessi æfing er hugsuð fyrir börn á grunnskólaaldri og elstu börn leikskóla, af báðum kynjum, sem kunna allan mannganginn og þyrstir í að læra meira og ná betri tökum á skáklistinni.
Á æfingunni tefla börnin hvert við annað í bland við létta kennslu. Börnin læra almennar reglur sem gilda á skákmótum og þau venjast því að tefla með klukku. Auk þess munu börnin læra grunnatriði á borð við liðsskipan og einföld mát.
Umsjón með æfingunum hefur Torfi Leósson (sími: 697 3974).
Framhaldsflokkur I
Lau kl.11:15-12:15
Mið kl.17:00-18:20
(29.000kr)
æfingar hefjast laugardaginn 5.sept

Æfingunum í framhaldsflokki I er ætlað að koma til móts við þau skákbörn TR, sem hafa mikinn áhuga á að taka framförum í skáklistinni. Þessar æfingar eru hugsaðar fyrir börn sem hafa æft skák áður í byrjendaflokki.
Leystar eru fjölbreyttar æfingar hvort sem það er í hópi, ein/n, eða ásamt þjálfara. Nemendur verða hvattir til þátttöku í skákmótum og leiðbeint um val á mótum. Jafnframt fá nemendur leiðbeiningar um hvernig þeir geti æft sig sjálfir heima. Nemendur sem taka virkan þátt í skákmótahaldi og taka framförum eiga þess kost að fara upp í framhaldsflokk II í samráði við þjálfara.
Tíminn í Framhaldsflokki I á laugardögum fer fram upp á lofti í TR, gengið upp stigann hjá innganginum í aðalskáksal.
Umsjón með framhaldsflokki I hefur Gauti Páll Jónsson (tölvupóstur: gautipall@taflfelag.is sími: 691 9937). Gauti Páll er fyrrum skólameistari Reykjavíkur og Íslandsmeistari 22 ára og yngri árið 2018.
Framhaldsflokkur II
Framhaldsflokkur TR II er hugsaður fyrir þá krakka sem eru áhugasamir og búnir að læra helstu grunnreglurnar í skák. Einnig að hafa reynslu af æfingum eða hafa tekið þátt á skákmótum.
Á æfingunum verður farið yfir þrautir og einnig teflt.
Kennt er tvisvar í viku:
Miðvikudagur: 17:00 -18:20 – Upp á lofti
Fimmtudagur: 17:00 – 18:20 – Upp á lofti
Fyrirspurnir um námskeiðið má sendast á taflfelag@taflfelag.is
Umsjón með náskeiðinu eru:
Adam Omarsson
Benedikt Þórisson (tölvupóstur: benedikt@taflfelag.is )
Iðunn Helgadóttir (tölvupóstur: idunn@taflfelag.is )
Ingvar Wu Skarphéðinsson
Framhaldsflokkur III
Mánudögum: 17:00-18:20
fimmtudögum: 17:00-18:20
(29.000kr)
Miðað er við að nemandi í framhaldsflokki III hafi reynslu af því að tefla reglulega á barnaskákmótum og hafi reynslu að tefla lengri skákir (kappskák) til dæmis Friðrikrsyrpu, eða hafi skákstig.
Umsjón með æfingunum Daði Ómarsson (sími 615-4273, tölvupóstur: dadi@taflfelag.is)
Æfingar eru tvisvar í viku (80 mín)
Afreksflokkur
Þri kl. 17:00-18:30 & Fös kl.17:00-18:30 (29.000kr)

Afreksflokkurinn er hugsaður fyrir stigahæstu og eldri ungmenni TR af báðum kynjum. Farið verður yfir ákveðin þemu í hverjum tíma og krefjast æfingarnar þess að nemendur geti unnið sjálfstætt.
Umsjón með æfingunum hefur Daði Ómarsson (sími 615-4273, tölvupóstur dadi@taflfelag.is).
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins