Skákmót öðlinga hefst í dag



Skákmót öðlinga 40 ára og eldri (fædd 1983 og fyr) hefst miðvikudaginn 15. febrúar kl. 18.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Eftir 40 leiki bætist við korter. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Davíð Kjartansson.

Athugið að lokaumferðin fer fram á mánudegi því Reykjavík Open hefst á miðvikudeginum í lokaviku mótsins.

Dagskrá 
1. umferð miðvikudag 15. febrúar kl. 18.30
2. umferð miðvikudag 22. febrúar kl. 18.30
3. umferð miðvikudag 1. mars kl. 18.30
4. umferð miðvikudag 8. mars kl. 18.30
5. umferð miðvikudag 15. mars kl. 18.30
6. umferð miðvikudag 22. mars kl. 18.30
7. umferð mánudag 27. mars kl. 18.30

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað 30 mínútum eða meira eftir upphaf umferðar.

Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Láta skal skákstjóra vita um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan.

Hraðskákmót öðlinga fer fram miðvikudaginn 5. apríl kl. 18:30 og að því loknu fer þar fram verðlaunaafhending fyrir bæði mót. Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.

Tímamörk í mótinu
90 mín + 30 sek viðbót eftir hvern leik. Eftir 40 leiki bætist við korter.

Verðlaun í mótinu
1. sæti kr. 40.000
2. sæti kr. 20.000
3. sæti kr. 10.000

Verðlaunafé verður skipt eftir Hort-kerfi verði keppendur jafnir að vinningum. Lokaröð keppenda ræðst af oddastigum (tiebreaks).

Oddastig: 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart

Þátttökugjald (greiðist með reiðufé við upphaf móts) eða lagt inn á reikning félagsins.

kr. 5.000

Skákstjórn: Auglýst síðar. Bendum á taflfelag@taflfelag.is

Skráningarform 

Þegar skráðir