Yfir 2000 mót Taflfélags Reykjavíkur hefst miðvikudaginn 20. október



Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa meira en 2000 Elo-stig. Miðað er við októberlista Fide. Tefldar eru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartími 90 mínútur fyrir alla skákina auk 30 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik. Leyfðar eru tvær yfirsetur í umferðum 1-5 sem skal tilkynna skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan en 1/2 vinningur fæst fyrir yfirsetu. Ekki er verður leyfilegt að fresta eða skákum. Teflt er einu sinni í viku, á miðvikudagskvöldum kl. 18.30, í Skákhöll félagsins að Faxafeni 12.

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Mótið er nú haldið í fyrsta sinn. Fyrsta umferð mótsins verður haldið samhliða 2. umferð U2000 mótsins. 

Dagskrá

  1. umferð: 20. október kl. 18.30
  2. umferð: 27. október kl. 18.30
  3. umferð: 3. nóvember kl.18.30
  4. umferð: 10. nóvember kl. 18.30
  5. umferð: 17. nóvember kl. 18.30
  6. umferð: 24. nóvember kl. 18.30 (Þá er 7. og síðasta umferð U2000 mótsins) 
  7. umferð: 1. desember kl. 18.30

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Tímamörk: 90 mín á alla skákina + 30 sek viðbót eftir hvern leik. Enginn aukatími eftir 40 leiki.

Verðlaun: 90% af greiddum þáttökugjöldum fara í verðlaunasjóð sem skiptist svona: 1. sæti 50%, 2. sæti 30%, 3. 20%. 

Röð mótsstiga (tiebreaks):  1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis viðureign 4. Fleiri sigrar

Þátttökugjöld: 18 ára og eldri kr. 5.000, kr. 3.000 fyrir félagsmenn í TR. 17 ára og yngri kr. 2.000, frítt fyrir félagsmenn í TR.

Skákstjórn: Jon Olav Fivelstad.

Birnukaffi verður opið!

Skráningarform

Þegar skráðir keppendur